Muckboot stígvél eru gerð úr náttúrulegu gúmmíi, klædd að innan með 5 mm þykku neoepreni og með sérstöku öndunarefni sem leyfir lofti að leika um fótinn. Gúmmíið stífnar ekki í frosti. Helstu kostir Muck boot eru 100% vatnsþéttni, ótrúleg þægindi og frábær einangrun gegn kulda.
Mjög létt veiðistígvél með göngumynstri á sóla.
Realtree felumynstur, skærgult að innan sem má sýna með að bretta upp á.
Varmasvið 15º til -25°