Nativerun GLX er mest selda stöngin okkar í GLX línunni og kannski engin furða því hérna er stöng sem hentar við flestar aðstæður hvort sem er í miklum vindi eða á köldum vor eða haustdegi. Þú kastar lengra með Nativerun GLX með mun minni áreynslu og kemur hvíldari í hús eftir góðan veiðidag.
Frábær stöng sem allir alvöru fluguveiðimenn verða að prófa.
Frekari tækniupplýsingar eru að fá á þessari slóð.