Hlutir í körfu:
0 stk

Samtals:
0 kr.

Beretta A400 Xplor m/kick off

Verð: 299.900,-
Nýjasta haglabyssan frá Berettu, glæsilega smíðuð, skiptibúnaður sem tekur öll skot, kemur með 26" hlaupi, 3 þrengingum, tösku, ólarfestingum og Kickoff búnaði.
 
Endurhannað gasskiptikerfi, “B-link! UNICO”, með nýjum snúningsbolta, sem leyfir enn lengri tíma á milli þrifa heldur en hinar frábæru A391 og Xtremur. Nýr teygjanlegur hringur er nú á gasventlinum, sem hindrar að gas leki úr ventlinum. Þetta eykur þrýstinginn og gerir skiptinguna enn hraðari fyrir vikið. A400 skiptingin er mjög hröð. Beretta staðhæfir að hún skipti sér a.m.k. 36% hraðar en nokkur önnur hálfsjálfvirk haglabyssa á markaðnum í dag. Prufubyssur hjá Berettu hafa skipt uppí 30.000 skotum milli þrifa. Allt afgangsgas fer nú í hlaupið en ekki inní lásverkið. Einnig er hún gerð til þess að skipta án vandræða öllum þekktum hleðslum, frá 24 grömmum uppí þyngstu 66 gramma.
 
MailSenda á vin